Fara beint í efni

Búnaður

Hitablásarar til leigu

Allir hitablásararnir okkar á einum stað: olíuhitablásarar, gashitari og rafmagnshitablásari til leigu fyrir kvikmyndatökur, tjöld, vinnusvæði og viðburði. Master olíuhitablásararnir eru óbeinir: útblásturinn fer út um stromp og aðeins hreint, þurrt og lyktarlaust heitt loft kemur inn í rýmið.

BV 77 E (21 kW) hitar tjald tökuliðs eða biðsvæði og gengur um 19 klukkustundir á tankfylli. BV 290 E (81 kW) hitar stór tjöld, sali og stærri tökustaði hratt. Fyrir minni rými er samanfellanlegur gashitari á hjólum og 2000 W rafmagnshitablásari sem fer í venjulega innstungu.

Hitablásararnir leigjast stakir eða með tjöldum, rafstöðvum og rafmagnstöflum, afhentir hvert á land sem er. Óskaðu eftir tilboði.

Master olíuhitablásari BV 77 E – 21 kWHitablásarar

Master olíuhitablásari BV 77 E – 21 kW

Olíublásari tilvalinn til að hita upp tjöld og önnur stór rými. Hreint, þurrt og lyktarlaust loft í tjöld og önnur rými. Gengur um 19 klst. á tankfylli. Kemur með barka og stromp til að leiða hitann.

Skoða nánar
Master olíuhitablásari BV 290 E – 81 kWHitablásarar

Master olíuhitablásari BV 290 E – 81 kW

Aflmikill óbeinn hitablásari sem skilar 3.300 m³/klst. og hitar stór tjöld, sali og stærri tökustaði hratt. Hreint, þurrt og lyktarlaust loft í tjöld og önnur stærri rými. Kemur með 2x börkum, splitter og strompi til að leiða hitann rétt.

Skoða nánar
Gashitari samanfellanlegurHitablásarar

Gashitari samanfellanlegur

Samanfellanlegur gashitari með hjólum sem auðveldar að færa hann til. Piezo rafkveikja 3 stk keramik plötur Logavörn og ODS öryggi Hitastillir (1,5kw lágmark, 2,8kw mið, 4,2kw mesta) Gasnotkun 110g/klst á lágmarki, 200g/klst á mið, 305g/klst á hámarki Passar fyrir 10L gaskút Hjól til að auðvelda flutning Hallavörn Stærð 42×38/15×73 cm Þyngd 8,3kg

Skoða nánar

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hver er munurinn á beinum og óbeinum hitablásara?

Óbeinn hitablásari leiðir útblásturinn út um stromp og blæs aðeins hreinu, þurru lofti inn. Þess vegna má nota Master BV blásarana okkar við tjöld og rými þar sem fólk dvelur.

Hversu lengi gengur hitablásarinn á tankfylli?

BV 77 E gengur um 19 klukkustundir á fullum tanki.

Þarf rafmagn fyrir olíuhitablásarann?

Já, blásarinn þarf rafmagn fyrir viftu og brennara. Við leigjum rafstöðvar og rafmagnstöflur með.

Ertu að skipuleggja tökur á Íslandi?

Segðu okkur hvað þú ert að taka upp og við setjum saman réttu bílana og tilboð, án skuldbindinga.

Óska eftir tilboði