Fara beint í efni

Flotinn

Kassabílar til leigu

Kassabílar til leigu í Reykjavík fyrir kvikmynda- og sjónvarpsverkefni, fyrirtæki og einstaklinga. Ford Transit og VW Transporter kassabílarnir okkar eru minnaprófsbílar: þá má keyra á venjulegu B-ökuskírteini, svo hver sem er í tökuliðinu getur sótt tækin.

Rafmagnslyfta og lokaður kassi gera þá tilvalda fyrir myndavéla-, leikmynda- og tökustaðadeildir, en líka í búslóðaflutninga, húsgagnaflutninga og lagerferðir. Bílarnir koma þjónustaðir, á sumardekkjum á sumrin og negldum dekkjum á veturna.

Við afhendum hvert á land sem er og setjum saman tilboð fyrir einn dag, viku eða heilt verkefni. Kerrur, hjólhýsi og búnaður leigjast með.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Þarf meirapróf á kassabílana?

Nei. Báðir kassabílarnir eru minnaprófsbílar og má keyra á venjulegu B-ökuskírteini.

Er lyfta á bílunum?

Já, rafmagnslyfta að aftan og hliðarhurð inn í kassann á Ford Transit, svo þungir hlutir fara inn án þess að lyfta þeim.

Má leigja kassabíl í búslóðaflutninga?

Já. Kassabílarnir eru til leigu fyrir einstaklinga og fyrirtæki jafnt sem kvikmyndaverkefni.

Hvað kostar kassabíll á dag?

Við birtum ekki fasta verðskrá. Segðu okkur dagana og við svörum með tilboði innan eins virks dags.

Ertu að skipuleggja tökur á Íslandi?

Segðu okkur hvað þú ert að taka upp og við setjum saman réttu bílana og tilboð, án skuldbindinga.

Óska eftir tilboði