Fara beint í efni

Búnaður

Lýsing til leigu

Vinnulýsing til leigu fyrir tökustaði, grunnbúðir og vinnusvæði. LED Nova 6K kastarinn gefur 6.000 lúmen frá deyfanlegri COB-plötu á þrífæti og lýsir upp heilt vinnusvæði eða tækjabækistöð. Scangrip ljósin eru minni og handhæg: taska með níu litlum ljósum og miðlungsstórt batterísljós.

Öll ljósin eru batterísknúin og fara upp án snúru, svo þau nýtast þar sem ekkert rafmagn er. Hleðslutæki fylgja og rafstöðvar og rafhlöðustöðvar eru í flokknum Rafmagn. Afhent hvert á land sem er. Óskaðu eftir tilboði.

Kastari LED NOVA 6K með þrífætiLýsing

Kastari LED NOVA 6K með þrífæti

6.000 lúmena deyfanlegur COB-kastari (IP67) á 1,35–3 m þrífæti, þetta eru batterísljós og þannig auðvelt að henda upp þegar þess þarf. Mjög gott fyrir næturtökur eða þegar fer að myrkva.

Skoða nánar
Mini Scangrip ljós - 9 ljós í töskuLýsing

Mini Scangrip ljós - 9 ljós í tösku

Meðfærilegur endurhlaðanlegur LED kastari sem er unnt að nota með eða án snúru Afkastamikil kastari með 26 LED ljósum sem veita allt að 1000 lm birtu OPTILight stilling sem hámarkar birtustig og endingartíma IP67/IK07 CCT (Kelvin): 5700 CRI: Ra > 80 Lengd: 102 mm Breidd: 39 mm Hæð: 94 mm Þyngd: 278g

Skoða nánar
Miðlungs Scangrip ljós - BatteryLýsing

Miðlungs Scangrip ljós - Battery

Endurhlaðanlegt LED ljós frá Scangrip. Innihledur nýjustu tækni COB LED. NOVA R hefur verið uppfærður úr 1500 lumen í 2000 lumen.

Skoða nánar

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Þarf rafmagn fyrir ljósin?

Nei, LED Nova kastarinn og Scangrip ljósin ganga á innbyggðum rafhlöðum. Þau eru hlaðin við afhendingu og hleðslutæki fylgja.

Ertu að skipuleggja tökur á Íslandi?

Segðu okkur hvað þú ert að taka upp og við setjum saman réttu bílana og tilboð, án skuldbindinga.

Óska eftir tilboði