Aflmikill óbeinn hitablásari sem skilar 3.300 m³/klst. og hitar stór tjöld, sali og stærri tökustaði hratt. Hreint, þurrt og lyktarlaust loft í tjöld og önnur stærri rými. Kemur með 2x börkum, splitter og strompi til að leiða hitann rétt.
Master BV 290 E er stóri óbeini olíuhitablásarinn í safninu okkar: 81 kW og 3.300 m³ af heitu lofti á klukkustund, nóg til að hita stórt tjald, sal eða stærri tökustað hratt. Útblásturinn fer út um strompinn og loftið sem kemur inn er hreint, þurrt og lyktarlaust.
Hann kemur með tveimur börkum, splitter og strompi, svo einn blásari getur hitað tvö rými eða báða enda á löngu tjaldi. Með rafstöð eða þriggja fasa rafmagnstöflu frá okkur kemur hann tilbúinn í gang, hvert á land sem er.