Fara beint í efni
1 / 16

Eftirvagnar

Hobby Prestige 560 WFU hjólhýsi til leigu

Hjólhýsi til leigu: fjögur eins, árgerð 2026, ganga á rafmagni og gasi, sér baðherbergi með sturtu.

Glæný Hobby Prestige 560 WFU hjólhýsi, árgerð 2026, staðsett í Reykjavík. Fullkomin aðstaða fyrir leikara: þau ganga bæði á rafmagni og gasi svo þú getir alltaf haldið þeim heitum, og hvert um sig er með sér baðherbergi með fallegri sturtu. Við erum með fjögur alveg eins stykki svo það verði aldrei mismunað leikurunum. Þetta er háklassa hýsi sem ætti að henta fyrir alla leikara, og það er einnig alltaf hægt að nota það sem gistingu ef út í það er farið.

Hverju hýsi fylgir fullur búnaður: sólarsella og rafgeymir, breytistykki (CEE tengi í Schuko innstungu) ásamt auka 25 m CEE rafmagnssnúru, gasgrill með grilláhöldum, tjaldstólar og útileguborð. Að innan er hitari (gasmiðstöð og hitablásari), ofn og gaseldavél, pottar og pönnur, hnífapör, diskar og skálar, glös og bollar, ísskápur með frystihólfi, kaffivél, hraðsuðuketill, klósett og sturta, og handklæði.

Hjólhýsin eru líka til leigu fyrir einstaklinga: fullbúinn ferðavagn í sumarfríið, útileguna, ættarmótið eða sem gistiaðstaða fyrir gesti. Allt fylgir, frá gasgrilli til handklæða, svo þú tengir bara við krókinn og leggur af stað.

Helstu kostir

  • Gengur bæði á rafmagni og gasi: gasmiðstöð + hitablásari halda hita hvar sem er
  • Sér baðherbergi með klósetti og fallegri heitri sturtu
  • Fjögur alveg eins stykki svo það verði aldrei mismunað leikurunum
  • Sólarsella og rafgeymir, ásamt 25 m CEE snúru og Schuko breytistykki
  • Fullbúið eldhús (ofn, gaseldavél, ísskápur með frysti, kaffivél) og gasgrill með útilegusetti
  • Leigist líka einstaklingum, t.d. í sumarfrí og útilegur
Óska eftir tilboði

Tæknilýsing

Fjöldi í flota
4
Svefnpláss
4
Lengd
7.5 m
Rafmagn
Shore power (CEE) / solar panel + battery
Hiti
Já
Vetrarútbúnaður
Já
·
Árgerð 2026 · staðsett í Reykjavík · breidd 2,50 m · heildarþyngd 2.000 kg á hýsi

Óska eftir tilboði

Engin verð birt, enda er hvert verkefni einstakt. Segðu okkur frá tökunum og við svörum með sérsniðnu tilboði.

Búnaður

Passar vel með

Rafstöð, hiti og öryggisbúnaður sem fylgir bílunum oftast á sett. Bættu við á sama tilboð.

Sjá allan búnað
Master olíuhitablásari BV 290 E – 81 kWHitablásarar

Master olíuhitablásari BV 290 E – 81 kW

Aflmikill óbeinn hitablásari sem skilar 3.300 m³/klst. og hitar stór tjöld, sali og stærri tökustaði hratt. Hreint, þurrt og lyktarlaust loft í tjöld og önnur stærri rými. Kemur með 2x börkum, splitter og strompi til að leiða hitann rétt.

Skoða nánar
Eskimo Outbreak 450XDP einangrað skjóltjaldTjöld, regnvarnir og festingar

Eskimo Outbreak 450XDP einangrað skjóltjald

Einangrað popup tjald rúmar 4–5 manns (~7 m² gólf) með StormShield-dúk, 7 gluggum og hitaraopum, hlýtt skjól fyrir tökuliðið.

Skoða nánar

Eftirvagnar

Fleiri í þessum flokki

Kerra með sturtuEftirvagnar

Kerra með sturtu

Kerra til leigu: Bilxtra Tractus Multi með sturtu, opnanlegum hlerum að framan og aftan, segl fylgir.

Skoða nánar