Fara beint í efni
1 / 3

Stuðningsbílar

Can-Am Outlander MAX 6x6 850 til leigu

Sexhjól til leigu: glænýtt Can-Am árgerð 2026 sem flytur búnað og fólk út fyrir enda vegarins.

Gríðarlega uppfærður 2026 Outlander MAX 6x6: 82 hestafla Rotax 999cc V2-mótor, pDrive kúpling með vinnustillingu og auka lágum gír, og veljanlegt fjór- eða sexhjóladrif með Visco-Lok QE sjálflæsandi framdrifslæsingu. Þrístillanlegt rafmagnsstýri, akstursstillingar og stillanleg mótorbremsa halda honum öruggum með myndavélabúnað upp skriðu eða rólega niður árbakka.

Hann dregur 830 kg, ber 454 kg á palli að aftan og rúmar 275 lítra í innbyggðum geymslum, þar af 30 lítra farangurshólf að framan, á 28" XPS Trail King dekkjum á 14" álfelgum með 30,5 cm veghæð. Götuskráður (T3, 65 km/h) svo hann tengir grunnbúðir og sett löglega um þjóðveg, og lausa farþegasætið tekur aðstoðarmann eða fer af fyrir meiri farm.

Sexhjólið er líka til leigu fyrir einstaklinga og fyrirtæki utan kvikmyndageirans: smalamennsku, veiðiferðir, vinnu á landareign eða ævintýraferðir. Götuskráningin þýðir að þú mátt keyra það á milli svæða án kerru.

Helstu kostir

  • 82 hestafla Rotax 999cc V2-mótor með veljanlegu fjór-/sexhjóladrifi og Visco-Lok QE sjálflæsandi framdrifi
  • 830 kg dráttargeta og 454 kg burðargeta á palli
  • 28" XPS Trail King dekk á 14" álfelgum, 30,5 cm veghæð
  • Þrístillanlegt rafmagnsstýri, akstursstillingar og stillanleg mótorbremsa (iEB)
  • Götuskráður (T3, 65 km/h) með LED-lýsingu, speglum og lausu farþegasæti
Óska eftir tilboði

Tæknilýsing

Sæti
2
Lengd
3.2 m
Hæð
1.4 m
Þyngd
631 kg
Dráttargeta
830 kg
Burðargeta
454 kg
Drif
6X6
Skipting
Sjálfskiptur
Eldsneyti
Bensín
Vetrarútbúnaður
Já
Dráttarkrókur
Já
·
Árgerð 2026 · 275 l innbyggð geymsla · 19,5 l tankur · heil botnplata · 2" dráttarkúla að aftan

Óska eftir tilboði

Engin verð birt, enda er hvert verkefni einstakt. Segðu okkur frá tökunum og við svörum með sérsniðnu tilboði.

Búnaður

Passar vel með

Rafstöð, hiti og öryggisbúnaður sem fylgir bílunum oftast á sett. Bættu við á sama tilboð.

Sjá allan búnað
Master olíuhitablásari BV 290 E – 81 kWHitablásarar

Master olíuhitablásari BV 290 E – 81 kW

Aflmikill óbeinn hitablásari sem skilar 3.300 m³/klst. og hitar stór tjöld, sali og stærri tökustaði hratt. Hreint, þurrt og lyktarlaust loft í tjöld og önnur stærri rými. Kemur með 2x börkum, splitter og strompi til að leiða hitann rétt.

Skoða nánar
Eskimo Outbreak 450XDP einangrað skjóltjaldTjöld, regnvarnir og festingar

Eskimo Outbreak 450XDP einangrað skjóltjald

Einangrað popup tjald rúmar 4–5 manns (~7 m² gólf) með StormShield-dúk, 7 gluggum og hitaraopum, hlýtt skjól fyrir tökuliðið.

Skoða nánar

Stuðningsbílar

Fleiri í þessum flokki

4x4 Silverado location pallbíllStuðningsbílar

4x4 Silverado location pallbíll

Fjórhjóladrifinn pallbíll til leigu: 33" dekk, dráttarkrókur og pláss fyrir allt location-dótið.

5 sæti 4X4
Skoða nánar